Lilja Mósesdóttir

Hrægammasjóðir vilja Ísland á hrakvirði.

október 28, 2012 by liljam | 0 comments

Baráttan framundan snýst um hvort Ísland verði land hrægammasjóða eða almennings. Þeir sem ekki átta sig á því eru vanhæfir til að stjórna landinu!

Kröfur á föllnu fjármálafyrirtækin hafa gengið kaupum og sölum. Fram hefur komið að um 80% krafna Glitnis og Kaupþings hafi skipt um hendur og fullyrt er að vogunarsjóðir hafi keypt upp stóran hluta þeirra. Telja má víst að um sé að ræða hrægammasjóði (vulture funds). Continue Reading →

október 24, 2012
by liljam
0 comments

Mér svíður óréttlætið í samfélaginu.

Óréttlætið sem birtist í endurkomu útrásarvíkinganna með fé úr skattaskjólum. Skattaskjólsvíkingar fá nú afslátt hjá Seðlabankanum til að gleypa fyrirtæki sem búið er að skuldahreinsa á kostnað íslenskra skattgreiðenda.

Óréttlætið sem birtist í 400 milljarða eignatilfærslu frá heimilum með verðtryggðar skuldir til lífeyrissjóða sem töpuðu um 479 milljörðum í loftbólufjárfestingum. Continue Reading →